Leikskólagjöld hækka mest á Seltjarnarnesi

Leikskólagjöld í Reykjavík eru lægst af sveitarfélögunum 16, en hæst …
Leikskólagjöld í Reykjavík eru lægst af sveitarfélögunum 16, en hæst í Garðabæ. mbl.is/Kristinn Magnússon

Leikskólagjöld hjá 16 stærstu sveitarfélögum landsins sýna að gjöldin hækkuðu milli ára hjá öllum nema Mosfellsbæ og Vestmannaeyjum. Mest var hækkunin hjá Seltjarnarnesbæ, eða um 6,9% fyrir 8 tíma vistun með fæði. Næstmest hækkaði í Garðabæ, eða um rúmlega 3%. Gjöldin lækkuðu hins vegar í Mosfellsbæ um 3,7%. Þetta kemur fram í nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ.

Gjöldin lægst í Reykjavík en hæst í Garðabæ

Almenn leikskólagjöld fyrir 8 tíma vistun með fæði eru hæst í Garðabæ en lægst í Reykjavík og munar þar tæplega 14.000 krónum á mánuði eða 53%. Sömu gjöld fyrir forgangshópa eru lægst í Reykjavík og hæst í Sveitarfélaginu Árborg en þar nemur munurinn ríflega 3.300 kr. á mánuði eða 12,6%. Gjöld fyrir níu tíma vistun á leikskóla eru hins vegar hæst hjá Fljótsdalshéraði en lægst í Mosfellsbæ.

Oftast eru hækkanir á leikskólagjöldum milli ára um eða undir 2,5% og eru hækkanir ekki umfram það hjá 14 sveitarfélögum af þeim 16 sem skoðuð eru. Seltjarnarnes sker sig úr, en þar hækkar 8 tíma vistun með fæði um 6,9% sem má rekja til 10% hækkunar á tímagjaldi. Í krónum talið hækka 8 tímar með fæði á Seltjarnarnesi því um 1.872 kr. á mánuði eða 20.592 kr. á ári sé miðað við 11 mánaða vistun. Á sama tíma hækkar níundi tíminn um 87,4% eða úr 3.505 kr. í 6.569 krónur og þá hækkar 9 tíma vistun á leikskóla um 16,1% milli ára. Næstmest hækkar 8 tíma vistun með fæði í Garðabæ um 3% en hækkunina má rekja til 2,5% hækkunar á tímagjaldi og 5,6% hækkunar á fæðisgjaldi.

8 tímar með fæði lækka um 3,7% milli ára í Mosfellsbæ sem er tilkomið vegna 5% lækkunar á tímagjaldi. Leikskólagjöldin standa í stað millli ára í Vestmannaeyjum en 8 tíma vistun með fæði hækkar minnst í Hafnarfirði um 0,64% sem má rekja til 5% hækkunar á fæðisgjaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert