Ölvaður hestamaður fluttur á sjúkrahús

Ljósmynd/Lögreglan

Ölvaður hestamaður var fluttur á sjúkrahús á Akureyri í dag eftir að hafa dottið af hestbaki.

Hestamaðurinn hlaut minniháttar meiðsl við fallið og fékk viðeigandi aðhlynningu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Þá var maður handtekinn á Akureyri um klukkan hálf 7 í kvöld fyrir húsbrot og líkamsárás. Maðurinn reyndi í annarlegu ástandi að ryðja sér leið inn í íbúðarhúsnæði og kýldi húseiganda hnefahöggi. Húseigandinn mun ekki hafa slasast alvarlega, en maðurinn verður vistaður í fangaklefa í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert