Jarðskjálfti 3,1 að stærð í nótt

Grjóthrun varð úr Gjögurtá eftir stóru skjálftana, helgina sem jarðskjálftahrinan …
Grjóthrun varð úr Gjögurtá eftir stóru skjálftana, helgina sem jarðskjálftahrinan hófst. Áfram mælist mikið af minni skjálftum á svæðinu. Ljósmynd/Sigurgeir Haraldsson

Jarðskjálfti af stærð 3,1 varð klukkan 4:15 í nótt, um 20 kílómetra norðvestur af Gjögurtá. Þetta er stærsti skjálftinn sem mælst hefur á svæðinu síðustu tvo sólarhringa en Veðurstofunni hafa ekki borist tilkynningar um að hann hafi fundist í byggð. Um klukkan sex í morgun varð annar skjálfti á svipuðu svæði, 2,8 að stærð. 

Jarðskjálftinn í nótt, sem var 3,1 að stærð, er sá …
Jarðskjálftinn í nótt, sem var 3,1 að stærð, er sá stærsti sem mælst hefur á Tjörnesbrotabeltinu síðustu tvo sólarhringa. Kort/Veðurstofa Íslands

Jarðskjálftahrinan við mynni Eyjafjarðar er því enn yfirstandandi en frá því að hrinan hófst 19. júní hefur sjálfvirkt jarðskjálftakerfi Veðurstofunnar staðsett um 9.600 skjálfta. 

Þrír skjálftar yfir 5 að stærð hafa mælst í hrinunni, sá stærsti sunnudagskvöldið 21. júní kl. 19:07 af stærð 5,8 rúma 30 km NNA af Siglufirði. Aðrir skjálftar yfir 5 að stærð voru 5,6 og 5,4 að stærð og voru staðsettir rúma 20 km NA af Siglufirði.

Óvissustig almannavarna vegna skjálftahrinunnar er enn í gildi og enn mælist mikið af minni skjálftum á svæðinu og áfram eru líkur á því að fleiri stærri skjálftar muni verða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert