Beint á mótmæli daginn eftir komu til landsins

Elísabet Guðmundsdóttir mætti í stúdíó K100 fyrir nokkru til að …
Elísabet Guðmundsdóttir mætti í stúdíó K100 fyrir nokkru til að ræða nýja tegund lýtaaðgerða. Hún hefur verið í kastljósinu undanfarið vegna skoðana sinna á sóttvarnaaðgerðum. mbl.is/Marta María

Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir fór hvorki í sóttkví né sýnatöku þegar hún kom til landsins frá Danmörku í gær. Þvert á móti var hún mætt á mótmæli á Austurvelli í dag ef marka má myndband á facebooksíðu hennar. Í Danmörku var Elísabet að funda með skoðanasystkinum sínum um sóttvarnir og Covid-19-faraldurinn, að eigin sögn.

Elísabet hefur gagnrýnt sóttvarnaaðgerðir harðlega, bæði hér á landi og erlendis. 

Mótmælin á Austurvelli voru skipulögð af Frelsishreyfingu fólksins, hóps sem mótmælir sóttvarnaaðgerðum vegna Covid-19. 

Í viðburði á Facebook, þar sem mótmælin voru boðuð, stendur eftirfarandi í lýsingu:

„Það er engin drepsótt, eina drepsóttin er sú illa meðferð sem við höfum orðið fyrir af hendi stjórnvalda undanfarna mánuði og við munum ekki samþykkja það lengur.

Hér má sjá myndband af mótmælunum frá því í dag.

Á facebooksíðu sinni gefur hún kenningunni um að Bill Gates, forstjóri Microsoft, sé á bak við Covid-19 gaum. Þá hefur hún lýst því yfir að dr. Fauchi, sóttvarnalæknir í Bandaríkjunum, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ættu fyrstir að fá bóluefnið.

Elísabet sagði í myndbandi sem hún birti í gærkvöldi að henni hefði verið hótað vegna skoðana sinna og hún vilji fara með börnin sín úr landi. Ekki náðist í hana við vinnslu fréttarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert