Áfengissala í Hlíðarfjalli

Hlíðarfjall á Akureyri.
Hlíðarfjall á Akureyri.

Þá er komið að því  við megum selja áfenga drykki í Hlíðarfjalli.“ Þannig hefst facebook-færsla veitingastaðarins í Hlíðarfjalli við Akureyri sem hóf í gær að selja áfengi á veitingastaðnum á skíðahótelinu og í Strýtu.

Akureyri.net gerði færslunni skil fyrr í dag.

Mörg okkar þekkja það erlendis frá að fá sér einn bjór eða kakó með rommi á góðum skíðadögum. Nú ætlum við að prófa að bjóða upp á þetta hér á Akureyri. Vonandi hafið þið þolinmæði með okkur á meðan við prófum okkur áfram  en umfram allt þá munum við leggja áherslu á öryggi og að öllum líði vel í fjallinu,“ segir þar.

Um helgina verður hægt að kaupa bjór, kakó með rommi, prosecco, hvítvín hússins (chardonnay) og rauðvín hússins (shiraz) á veitingastaðnum á hótelinu. Uppi í Strýtu verður það bjór og kakó með rommi.

Ekki má taka áfengi út af skíðahótelinu þessa helgina, en innan skamms verður sett upp svæði þar sem má neyta áfengis á skaflinum við nestishúsið.

Við biðjum alla að hjálpa okkur að sjá til að þessi nýjung fari vel af stað. Það eru alls konar reglur sem við þurfum að uppfylla, og það er aðeins gerlegt ef allir hjálpa okkur við það og fara eftir fyrirmælum starfsfólks. Einnig er mikilvægt að ekkert ónæði skapist og að sjálfsögðu eru allar Covid-reglur ennþá í gildi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert