Tæp 18% hafa lent í myndbirtingu gegn vilja sínum

Rannsóknir benda til þess að þegar komið er í 9. …
Rannsóknir benda til þess að þegar komið er í 9. bekk verði veruleg aukning í klámneyslu drengja og þrýstingur aukist á stelpur að deila kynferðislegu myndefni. Ljósmynd/Colourbox

Ríkislögreglustjóri (RLS) hefur ráðist í fræðslu- og forvarnaherferð í samstarfi við Neyðarlínuna gegn stafrænum birtingarmyndum ofbeldis hjá unglingum. Herferðinni er sérstaklega beint að nemendum í 8. bekk og aðstandendum barna, en á þeim aldri eru börnin orðin nógu gömul til þess að nota samfélagsmiðla og mörg farin að nota síma án fjölskyldustillinga.

Ástæða þess að valið var að beina forvarnaefninu gagngert að þessum aldurshópi er m.a. sú að rannsóknir benda til þess að þegar komið er í 9. bekk verði veruleg aukning í klámneyslu drengja og þrýstingur aukist á stelpur að deila kynferðislegu myndefni. Nýleg könnun Fjölmiðlanefndar leiddi í ljós að u.þ.b. ein af hverjum fjórum stúlkum á aldrinum 15-17 ára hefur verið þvinguð til myndsendinga og tæp 18% hafa lent í myndbirtingu gegn vilja sínum, að því er segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Þá segir, að herferðin sé hluti af aðgerðum gegn stafrænu ofbeldi á Íslandi sem stjórnvöld fólu RLS að sinna fyrr á þessu ári, en verkefnið hefur verið unnið í góðri samvinnu við lögregluembættin á landsvísu, Samband íslenskra sveitarfélaga og stýrihóp um forvarnaráætlun meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Verkefnið er í samræmi við aðgerðaráætlun stjórnvalda gegn kynferðisbrotum. Þá hefur verið hrint úr vör árveknisátaki um nýtt app 112 auk þess sem upplýsingum um stafrænt öryggi og samþykki hefur verið bætt við vefgátt 112.

Forvarnarefnið beinist sérstaklega að börnum í 8. bekk

Þá segir að stafrænum upplýsingapakka með forvarna- og fræðsluefni fyrir unglingastig sé nú dreift til allra grunnskóla á landinu. Í efninu sé áhersla lögð á að samþykki sé kjarninn í öllum kynferðislegum samskiptum, hvort sem þau séu stafræn eða ekki. Forvarnaefnið beinist sérstaklega að 8. bekkingum og munu samfélagslöggur heimsækja nemendur bekkjanna eins og unnt er á þeirra starfssvæði. Samfélagslöggur eru lögregluþjónar sem vinna markvisst að því að styrkja tengsl lögreglunnar við ungt fólk og færa lögregluna nær samfélaginu. Boðið verður upp á foreldrafundi með samfélagslöggunum á netinu til að fylgja fræðslunni eftir eins og kostur er, að því er segir í tilkynningu.

Skráðum kynferðisbrotum gegn börnum fjölgaði árið 2020

Ennfremur segir, að skráðum kynferðisbrotum gegn börnum og tilkynningum vegna barnaníðsefnis fjölgaði árið 2020 samkvæmt nýlegri samantekt ríkislögreglustjóra. Árið 2020 voru skráð 134 kynferðisbrot gegn börnum en meðalfjöldi mála síðustu þrjú árin á undan var 98 mál á ári. Þá voru skráð 32 brot sem vörðuðu barnaníð (myndir, myndskeið og annað efni), sem er aukning frá árunum þremur á undan þegar meðaltalið var 24 brot á ári. Það sem af er þessu ári hafa 36 brot er varða barnaníð verið skráð hjá lögreglunni.

Á sama tíma og fræðslu- og forvarnaherferðin fer af stað verður nýtt app 112 kynnt. Tilgangurinn með því er að auðvelda fólki, sem gæti átt erfitt með að lýsa aðstæðum í síma, að miðla upplýsingum til neyðarvarða. Umtalsverðar upplýsingar gegn ofbeldi eru nú þegar aðgengilegar fyrir börn og ungmenni á vefgátt 112 og hefur nú verið bætt við auknum upplýsingum um stafrænt öryggi og samþykki. Nú er því hægt að tilkynna atvik með því að hringja í 112, tengjast netspjalli 112 eða leita upplýsinga um úrræði á vefgátt 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert