Alls 99 ofbeldisbrot tilkynnt í desember

Alls bárust 99 tilkynningar um ofbeldisbrot í desember og fækkaði …
Alls bárust 99 tilkynningar um ofbeldisbrot í desember og fækkaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Eggert Jóhannesson

Skráð voru 683 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í desember og fjölgaði þessum brotum lítillega á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir desember 2021.

Tilkynningum um þjófnað og innbrot fjölgaði

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningar um um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 11 prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Þá fjölgaði tilkynningum um eignaspjöll og nytjastuld á vélknúnum ökutækjum einnig á milli mánaða.

Alls bárust 99 tilkynningar um ofbeldisbrot í desember og fækkaði þessum tilkynningum á milli mánaða.

Tilkynningar um heimilisofbeldi fækkaði örlítið á milli mánaða og fóru úr 64 tilkynningum í nóvember í 59 tilkynningar í desember. Það sem af er ári hafa borist um níu prósent fleiri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Frá umferðareftirliti lögreglunnar.
Frá umferðareftirliti lögreglunnar. mbl.is/Eggert

Ekki færri umferðarlagabrot síðan árið 2015

Alls bárust 12 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í október og fjölgaði þessum beiðnum á milli mánaða.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru tvö stórfelld fíkniefnabrot skráð í desember.

Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í desember voru skráð 488 umferðarlagabrot, að hraðamyndavélum undanskildum, en ekki hafa verið skráð jafn fá umferðarlagabrot síðan í nóvember 2015. Það sem af er ári hafa verið skráð um 26 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert