650 milljónum úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Hæstu framlögin renna til hjúkrunarheimila Sjómannadagsráðs.
Hæstu framlögin renna til hjúkrunarheimila Sjómannadagsráðs. Ljósmynd/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 650 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra í samræmi við tillögur stjórnar sjóðsins.

Þá segir heilbrigðisráðherra í tilkynningu vegna úthlutunarinnar að áhersla hafi verið lögð á verkefni sem bæta aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum, úrbætur sem tengjast aðgengismálum og öryggismálum og ýmsum stærri viðhaldsverkefnum. Alls bárust umsóknir um framlög til 60 verkefna og hlutu 54 þeirra styrk.

Hæstu framlögin renna til hjúkrunarheimila Sjómannadagsráðs, alls um 250 milljónir króna til 14 mismunandi verkefna. Þar af vega þyngst úrbætur á Hraunvangi í Hafnarfirði þar sem m.a. verða gerðar endurbætur á 50 baðherbergjum í einkarýmum íbúa.

Þá verður einnig ráðist í innleiðingu nýjungar sem felur í sér hæðarstillanleg salerni og handlaugar og færanleg sturtusett sem auðveldar íbúum að sinna persónulegu hreinlæti og bætir vinnuaðstöðu starfsfólks.

Önnur verkefni sem hljóta styrk eru margvísleg endurbóta- og viðhaldsverkefni á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið. Sem dæmi má nefna endurnýjun á lyftubúnaði, endurbætur á netkerfum, uppsetning á nýjum brunakerfum, endurnýjun raflagna og endurbætur á útiaðstöðu íbúa. Þá fær Sveitarfélagið Ölfus fær tæpar 29 milljónir króna í styrk vegna framkvæmda við nýja dagdvöl fyrir 16 einstaklinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert