Lögreglan rannsakar tilraun til manndráps

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft til rannsóknar ætlað stórfellt brot í nánu sambandi og ætlaða tilraun til manndráps frá 25. febrúar sl. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp.

Rannsóknin málsins, sem er nokkuð umfangsmikil, hefur verið í algjörum forgangi hjá embættinu, að því er lögreglan greinir frá.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu, segir hún enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert