Grunsamlegar mannaferðir á Akranesi

mbl.is/Arnþór

Lögreglan á Vesturlandi segir að undanfarna daga hafi orðið vart við grunsamlegar mannaferðir á Akranesi.

Ekki fylgir sögunni hvaða einstaklingar voru þarna á ferðinni, en lögreglan greinir frá þessu í færslu á Facebook. 

„Vill lögregla benda íbúum Akraness á að hafa samband strax við lögreglu ef það verður vart við grunsamlegar mannaferðir sama á hvaða tíma sólahringsins það er. Hringja í 112 og óska eftir aðkomu lögreglu sem vill gjarnan ná tali af þessu fólki.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert