Ógnaði dyraverði með hníf

Búið var að afvopna einstaklinginn þegar lögregla kom á staðinn …
Búið var að afvopna einstaklinginn þegar lögregla kom á staðinn og var hann í kjölfarið handtekinn. mbl.is/Ari

Lögregla var kölluð til á skemmtistað í miðborginni klukkan 2.46 í nótt. Hafði þar einstaklingur ógnað dyraverði með hníf.

Búið var að afvopna einstaklinginn þegar lögregla kom á staðinn og var hann í kjölfarið handtekinn.

Hann er nú vistaður á lögreglustöð í þágu rannsóknar málsins, að því er segir í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert