Forsetafylgismenn dregnir í dilka

Nokkrir frambjóðendur hafa tekið forystu.
Nokkrir frambjóðendur hafa tekið forystu. mbl.is/Árni Sæberg

Þó enn séu tíu dagar þar til framboðsfrestur rennur út virðast flestir hafa fundið sér frambjóðanda; aðeins 8% eru óviss.

Aftur á móti blasir við að nokkrir frambjóðendur hafa tekið forystu, en viðbúið að allnokkrir falli frá framboði á næstu dögum og vikum.

Að ofan getur að líta hlutfallslegt fylgi frambjóðenda, þegar aðeins er litið til þeirra sem tóku afstöðu, en jafnframt eru vikmörk fylgisins sýnd.

Til þess að segja fyrir um frekari þróun í kosningabaráttunni er fróðlegt að skoða greiningu á fylginu eftir hópum. Þannig má sjá nokkurn mun á fremstu frambjóðendum eftir búsetu, sem ekki verður skýrður með því hvaðan þeir koma. Eins er eftirtektarvert að konur styðja Baldur frekar en karlar, en óverulegur kynjamunur á fylgi annarra frambjóðenda.

Þegar litið er til aldurs ber mest á því hvað Jón Gnarr höfðar til yngra fólks, en stuðningurinn fjarar fljótt út með aldri. Katrín sækir hins vegar mest til fólks á miðjum og besta aldri.

Pólitíkusar í framboði

Sjálfsagt er þó athyglisverðast að skoða fylgið með tilliti til stjórnmálaafstöðu svarenda. Þrír fyrrverandi stjórnmálamenn eru þar fremstir meðal jafningja og ekki ósennilegt að stjórnmálaskoðanir kjósenda gefi einhverjar vísbendingar um kosningahegðun í forsetakjöri.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert