Sjúkrabíll vegna skordýramyndatöku

Óskað var eftir sjúkrabíl vegna manns sem lægi í hnipri á íþróttavelli í austurborg Reykjavíkur. Þegar að var gáð reyndist þetta vera maður að taka myndir af skordýrum og var hann hinn hressasti, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík.

Seinna sama dag var tilkynnt um mann sem sæti hreyfingarlaus með opin augu og opinn munn inni í bifreið við Hafravatnsafleggjara. Maðurinn reyndist vera sofandi og var í lagi með hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert