Lítið skrifræði en mikill kostnaður við stofnun fyrirtækja

Athugun sem Verslunarráð Íslands hefur gert á kostnaði við stofnun fyrirtækja leiðir í ljós að hér á landi er skrifræði við stofnun fyrirtækja lítið og krafa um innborgað hlutafé er lægri hér en víða annars staðar. Hins vegar er kostnaður vegna skráningar fyrirtækja töluvert hærri en í mörgum öðrum aðildarríkjum OECD.

Verslunarráðið segir að komið hafi fram í athugunum að frumkvöðlastarfsemi sé umfangsmikil hérlendis. Ein ástæða þess kunni að vera sú að tiltölulega einfalt er fyrir einstaklinga að stofna fyrirtæki á Íslandi. Alþjóðabankinn hefur gefið út samanburð á því hversu mikla fyrirhöfn og fjármuni þarf til þess að stofna ný fyrirtæki í yfir 80 löndum. Ísland er ekki á þessum lista en VÍ segir að í athugun sem samtökin gerðu hafi komið í ljós að á Íslandi sé skrifræði í kringum stofnun nýrra fyrirtækja með minnsta móti. Hérlendis þurfi einungis að sækja um skráningu hjá ríkisskattstjóra sem taki að jafnaði sólarhring. Þá þurfi að sækja um virðisaukaskattsnúmer hjá skattstjóra sem taki að hámarki 8 daga og launagreiðandi þurfi um leið að skrá sig hjá skattstjóra.

Á móti komi þó að minni kostnaður sé við stofnun nýrra fyrirtækja í ýmsum samkeppnislöndum okkar. Þannig séu til að mynda engin opinber gjöld við stofnun fyrirtækja í Danmörku. Segir VÍ að í þeim löndum Evrópu þar sem mikil fyrirhöfn sé við skráningu nýrra fyrirtækja virðist vera minna um stofnun fyrirtækja. Í Frakklandi og Þýskalandi sé til að mynda mun flóknara að stofna nýtt fyrirtæki en hér á landi og þar sé hlutfallslega mun minna um skráningu nýrra fyrirtækja. Í Þýskalandi þurfi stofnendur fyrirtækja m.a. að tilkynna um stofnun fyrirtækis hjá vinnumarkaðsskrifstofu, skrá starfsmenn í tryggingarfélag, opna bankareikning og skrá fyrirtækið hjá þeim samtökum fyrirtækja sem við eigi í hverju tilviki fyrir sig. Í Rússlandi sé skrifræðið í kringum stofnun fyrirtækja enn meira og þar þurfi fyrirtæki m.a. að skrá sig hjá hagstofu, skattstofu, lífeyrissjóði og tryggingafélagi.

„Ýmis nágrannalönd okkar hafa skynjað mikilvægi þess að auka nýsköpunarstarfsemi með því að ryðja burt hindrunum við stofnun fyrirtækja. Mörg lönd hafa því siglt upp að hlið okkar Íslendinga og dregið umtalsvert úr skrifræði við stofnun fyrirtækja en hafa þó gengið lengra en við í að draga úr kostnaði vegna skráningar fyrirtækja. Krafa um innborgað hlutafé er lægri hér en víða annars staðar þó nokkur lönd eins og Kanada og Bandaríkin geri engar kröfur um slíkt. Hér er kostnaður vegna skráningar einkahlutafélaga um 86.000 krónur eða sem nemur 3,7% af landsframleiðslu á mann. Kostnaður vegna sambærilegra skráninga í ýmsum nágrannalöndum okkar eins og í Danmörku, Svíþjóð og Bandaríkjunum er mun minni eða sem nemur 0,0-0,7% af landsframleiðslu á mann," segir í umfjöllun VÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert