Helst reynt að smygla fíkniefnum frá Danmörku, Hollandi og Bretlandi

Ríkislögreglustjóri segir, að af haldlagningum lögreglu og tollgæslu á landamærum árið 2003 að dæma sé algengast að reynt sé að smygla fíkniefnum frá Danmörku, Hollandi og Bretlandi. Ekki liggja fyrir upplýsingar frá hvaða löndum efnin eru upprunnin. 72 voru handteknir vegna smygls á fíkniefnum á liðnu ári, 65 karlar og 7 konur. 17 voru voru yngri en 25 ára og þ.a. ein kona.

Við skoðun á flutningsleiðum efna eftir magni þeirra má sjá að mest af hassi og amfetamíni kemur með skipum en kókaín kemur með flugi, Maríjúana og e-töflur finnast helst í póstsendingum.

Töflur um haldlögð fíkniefni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert