Verð á heitu vatni lækkar um 1,5% í dag.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ákvað fyrir skömmu að lækka verð á heitu vatni til notenda á höfuðborgarsvæðinu um 1,5% og kæmi sú ákvörðun til framkvæmda í dag.

Í tilkynningu frá OR segir, að vísitala neysluverðs hafi undanfarna mánuði hækkað um 3,5%, en vegna aukinnar sölu á heitu vatni á undanfarna mánuði hafi verið ákveðið að taka þá hækkun ekki með í reikninginn. Heildarlækkun á heitu vatni til notenda nemi því 5%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert