Eiríkur Hjálmarsson ráðinn til OR

Eiríkur Hjálmarsson, aðstoðarmaður Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra, hefur verið ráðinn til Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og mun taka við nýju starfi upplýsingafulltrúa í júní nk., segir Guðmundur Þóroddsson, forstjóri OR. Eiríkur mun gegna starfi upplýsingafulltrúa OR, sem er ný staða, og mun hún heyra beint undir forstjóra. Áður hafði Helgi Pétursson gegnt því starfi með öðru, en Guðmundur segir að Helgi muni nú einbeita sér að verkefnum tengdum ferðamennsku.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert