Skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela tóbaki

Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann fyrir að brjótast inn í söluturn í október sl. og stela 5 sígarettupökkum og 30 tyggjópökkum, samtals að söluandvirði 4050 kr. Maðurinn játaði sök og var refsing hans ákveðin skilorðsbundið fangelsi í einn mánuð.

Maðurinn viðurkenndi einnig bótakröfu sem Vátryggingafélag Íslands lagði fram og var dæmdur til að greiða 69.779 krónur. Hann hefur ekki hlotið refsingu áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert