Bilun í Cantat sæstrengnum

Bilun kom upp í Cantat sæstrenginn um hálf-tólfleytið í kvöld. Að því er kemur fram í tilkynningu frá Símanum er ekki vitað hvað veldur sambandsleysinu en unnið er að bilanagreiningu. Bilunin hefur óveruleg áhrif á talsímaumferð hjá fyrirtækinu en minnkar afkastagetu Símans á Internetinu þar sem bandbreidd til útlanda minnkar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert