Hannes Kristmundsson valinn Sunnlendingur ársins

Hannes Kristmundsson
Hannes Kristmundsson mbl.is/Ásdís

Hannes Kristmundsson, garðyrkjubóndi í Hveragerði, er Sunnlendingur ársins 2006 að mati lesenda Sunnlenska fréttablaðsins og fréttavefjarins Sudurland.is.

Hannes hafði forgöngu um að 10. nóvember síðastliðinn voru reistir 52 krossar við Kögunarhól eða jafn margir þeim sem þá höfðu týnt lífi í umferðarslysum á milli Selfoss og Reykjavíkur frá árinu 1973.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert