Ekið á dreng á reiðhjóli

Umferðaróhapp varð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík um kl. 21 í kvöld þegar ekið var á ungan dreng. Að sögn lögreglu hjólaði drengurinn, sem er um 10 ára gamall, í veg fyrir bíl. Drengurinn var með hjálm á höfði og er talin vera minniháttar slasaður. Hann var hinsvegar fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert