Dáti bitinn í eyrað í Bankastræti

Til stympinga kom í miðborginni í nótt milli tveggja Íslendinga annars vegar og þriggja eða fjögurra skipverja á einu herskipanna sem liggja í Reykjavíkurhöfn. Lögreglan skarst í leikinn og stillti til friðar, en þá hafði einn dátanna verið bitinn í annað eyrað og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Þetta var um klukkan hálf tvö í nótt í Bankastræti í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki urðu önnur teljandi meiðsl í stympingunum, og höfðu þau ekki frekari eftirmála, svo vitað sé. Væntanlega verður lögð fram kæra á hendur bitvarginum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert