Norrænir biskupar funda í Reykjavík

Biskuparnir ásamt mökum á Þingvöllum
Biskuparnir ásamt mökum á Þingvöllum

Allir biskupar lúthersku þjóðkirknanna á Norðurlöndum eru á fundi í Reykjavík þessa dagana. Slíkur fundur er haldinn á þriggja ára fresti og var síðast haldinn hér fyrir fimmtán árum. Að þessu sinni taka 39 biskupar þátt í fundinum, 36 biskupar Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Færeyjum og Grænlandi og þrír frá Íslandi.

Fundurinn hófst á mánudagskvöld og honum lýkur með messu í Hallgrímskirkju í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 9.00.

Á dagskrá fundarins er að venju yfirlit yfir stöðu mála er snerta kirkju og trúarlíf í hverju landi fyrir sig. Þá er tíminn nýttur til að kynnast landi og kirkju þeirrar þjóðar sem er gestgjafi hverju sinni. Í kynningu á Íslandi er lögð áhersla á vatn og náttúruvernd, að því er segir í tilkynningu.

Í gær, miðvikudag, fór hópurinn í ferð til Þingvalla, þar sem hann fræddist um vatnið og jarðfræði Þingvalla og tók þátt í bænagöngu og helgistund í Þingvallakirkju. Í dag, fimmtudag verður farið til Gvendarbrunna og að Nesjavöllum. Meðal annarra dagskrárliða í dag er fyrirlestur Árna Svans Daníelssonar um ímynd prestsins í kvikmyndum og notkun kvikmynda í kirkjustarfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert