Þeir sem áhuga hafa geta fundið vændi

„Ég býð erótískt nudd, mjög góða þjónustu sem kostar 20 þúsund. Ef þú vilt eitthvað meira þá er það í boði, en kostar meira," segir erlend „nuddkona" sem auglýsti þjónustu í Fréttablaðinu. Samkvæmt upplýsingum 24 stunda leggur konan stund á vændi í fjölbýlishúsi í Reykjavík.

Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir auglýsinguna ekkert einsdæmi og í raun geti hver sem er fundið vændi hafi hann áhuga. „Við fáum ábendingar öðru hverju," segir hann aðspurður hvort hann verði mikið var við vændi. Hann segir deildina reyna að kanna flest mál sem henni er bent á en það geti verið erfitt.

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, segir úrræðaleysi lögreglunnar sýna að lögin séu gölluð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert