Frumbyggjar í Ástralíu eru æfir af reiði eftir að lögreglumaður í í borginni Alice Springs bannaði dönsurum frá héraðinu Papunya að æfa þjóðdansa frumbyggja í almenningsgarði í borginni en frumbyggjakonur dansa slíka dansa berar að ofan.
Konurnar segja að þjóðdansarnir hafi verið dansaðir með þessum hætti í þúsundir ára og þeir séu hluti af menningu frumbyggja. Hefur frumbyggjaráð Ástralíu ákveðið að leggja fram formlega kvörtun vegna dansbannsins, að því er kemur fram á fréttavef BBC.
Takist mannréttinda- og jafnréttisráði Ástralíu ekki að miðla málum segjast frumbyggjar ætla að höfða mál fyrir dómstóli vegna brots á jafnréttislögum.
Fulltrúar frumbyggja segja að lögreglan eigi án tafar að biðjast afsökunar á gerðum sínum. "Þetta er hluti menningar okkar og þúsundir manna um heim allan hafa séð konur okkar dansa naktar að ofan í sjónvarpi, í leikhúsum og við mörg önnur tækifæri," sagði Kunmanar Breaden, einn af forustumönnum frumbyggja.
En lögreglan segist ekki þurfa að biðjast afsökunar á neinu. "Lögreglan gerir sér vel grein fyrir því að ágreiningur getur risið vegna mismunandi menningar en við styðjum aðgerðir lögreglumannsins sem sagði konunum að fara úr garðinum," sagði Trevor Bell, lögregluforingi.