Segir hóp leikmanna í ensku úrvalsdeildinni hafa nauðgað sér

Lögreglan í Lundúnum hefur fengið mál til rannsóknar þar sem sautján ára stúlka staðhæfir að átta karlmenn, allir leikmenn liða í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hafi nauðgað sér á hótelherbergi í Lundúnum um helgina. Lögregluyfirvöld í Lundúnum hafa staðfest að þeim hafi borist ásökun frá sautján ára stúlku um að henni hafi verið nauðgað en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Í frétt götublaðsins The Sun segir að átta leikmenn séu viðriðnir málið sem hafi gerst á lúxushóteli í vesturhluta Lundúna. Stúlkan sem um ræðir hafi ætlað að sænga með einum leikmanni en hinir, úr öðru liði en hann, hafi komið að þeim og ráðist á sig.

Sun vildi ekki nafngreina leikmennina af lagalegum ástæðum en fullyrti þó að a.m.k. einn leikmannanna væri landsliðsmaður og nokkrir aðrir væru alþekktir.

Þrír leikir fóru fram í úrvalsdeildinni ensku í Lundúnum um helgina, Arsenal tók á móti Newcastle sl. föstudag, Chelsea lék á heimavelli við Aston Villa á laugardaginn og Charlton tók á móti Liverpool á sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert