Ekki kemur til greina að víkja frá heildstæðu umhverfismati vegna álvers á Bakka. Þingmaður Sjálfstæðisflokks vildi vita hvort umhverfisráðherra vildi beita sér fyrir því í ljósi efnahagsaðstæðna. Ráðherrann sagði nei og sakaði þingmanninn um vanþekkingu og fráleitan málflutning.