Gosið á Fimmvörðuhálsi er hvergi nær í rénun þó það hafi verið nokkuð stöðugt undanfarin sólarhring. Hraunfossinn er tignarlegur og gríðarlegir gufubólstrar myndast þegar hraunið kemst í snertingu við ís í botni Hrunaárgils; „hreinlega líkt og kvikni í ísnum,“ að sögn blaðamanns Morgunblaðsins.