Auðveldar Google Earth hryðjuverk?
Bloggað um fréttina
-
veffariAuðvelda blýantar hryðjuverk?
-
Helgi Hrafn GunnarssonBönnum frekar fáránlegar tillögur
-
Einar JónBlaðamenn mbl.is væru lélegir hryðjuverkamenn
-
Ingimar EggertssonÞurfum við kannski að hafa góðar gardínur?
-
Kristinn Ingi PéturssonÞröngsýni, sömu rök ættu að banna öll kort og
-
Ívar AndersenÞetta er lítill heimur orðinn!
Indverskir dómstólar hafa verið hvattir til þess að banna tölvuforritið Google Earth þar sem talið er að forritið hafi verið notað til að skipuleggja hryðjuverkaárásirnar í Mumbai í nóvember. Forritið er ókeypis og veitir aðgang að lítarlegum loftmyndum flestra borga heims.
Lögfræðingurinn Amit Karkhanis lagði inn beiðni til dómstóla um að myndir af viðkvæmum stöðum á Indlandi verði ruglaðar í forritinu þar til úrskurður hafi fengist í málinu, þetta kemur fram á fréttavef The Times.
Talið er að byssumennirnir sem urðu yfir 170 manns að bana í Mumbai og fólkið sem þjálfaði þá hafi nýtt sér hátækni við árásirnar m.a. notað háþróuð GPS tæki til að sigla í höfn í Mumbai. Þá hafi þeir hafi átt samskipti um gervihnött, notað farsíma með mismunandi SIM kortum auk þess að hafa nýtt sér internetið með aðstoð Blackberry síma.
Að sögn lögreglunnar í Mumbai segir eini árásarmaðurinn sem handtekinn var eftir árásirnar að hryðjuverkamennirnir hafi nýtt sér gervihnattamyndir til að kynna sér gatnakerfið í Mumbai.
Árið 2005 féllst Google fyrirtækið á að rugla myndir af þaki Hvíta hússins í Washington þegar myndir af því voru uppfærðar. Þá hafa yfirvöld í Suður-Kóreu og Taílandi einnig lagt fram kvartanir eftir að herflugvellir voru sýndir í forritinu.
Til baka








Senda inn efni

