Metan á Mars

Mikið af metangasi hefur fundist á þrem stöðum á plánetunni Mars, að sögn BBC. Gasið streymir upp úr jarðveginum og er skýringin annaðhvort jarðfræðileg virkni eða þá að gasið á sér lífrænar orsakir.

Fimm ár eru síðan metan var fyrst greint á Mars. Nú hefur komið í ljós að það eyðist ekki í sólinni eins og það ætti að gera ef um stundarfyrirbæri væri að ræða heldur er uppstreymið stöðugt.  Ekki er enn ljóst hvort gasið á sér rætur langt aftur í fortíðinni nútímanum, að sögn vísindamanna.

 Sé uppruninn af lífrænum toga vakna spurningar um það hvort örverur geti hafa lifað í óratíma fyrir neðan sífrerann í jarðlögum Mars. 

Mars er með bæði suður- og norðurpól eins og jörðin.
Mars er með bæði suður- og norðurpól eins og jörðin. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert