Rafbílaleiga í HR

Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, fékk fyrsta bílinn lánaðan til að skjótast …
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, fékk fyrsta bílinn lánaðan til að skjótast á fund í næsta nágrenni. mbl.is/Eggert

Rafbílaleigu, fyrir starfsmenn og nemendur Háskólans í Reykjavík, undir heitinu Forskot, var sett af stað í orkutæknistofu HR við Nauthólsvík í dag. Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, fékk fyrsta bílinn lánaðan til að skjótast á fund í næsta nágrenni.

Í fréttatilkynningu kemur fram að með rafbílaleigunni verður nemendum og kennurum gert kleift að leigja rafbíla til að sinna óvæntum erindum eða fundum yfir daginn. Rafbílaleigan er hluti af rannsóknarverkefni tækni- og verkfræðideildar HR og er markmiðið að kanna forsendur rafvæðingar einkabíla og almenningssamgangna í Reykjavík.

Rafbílarnir eru gerðir af nemendum tækni- og verkfræðideildar HR.

Að athöfn lokinni hefst tæknidagur Háskólans í Reykjavík þar sem nemendur tækni- og verkfræðideildar HR sýna afrakstur vetrarins, innandyra sem utan, svo sem kafbáta, vélmenni og fleira.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert