Opna gagnatorg á netinu

Fyrirtækið DataMarket hefur hleypt af stokkunum gagnatorgi sínu á vefslóðinni DataMarket.com. Gagnatorgið tekur saman töluleg gögn frá ýmsum opinberum aðilum og einkafyrirtækjum og gerir þau aðgengileg á einum stað með samræmdum eiginleikum, svo sem leitarmöguleikum, samanburði, tengingum við fréttaefni og aðra viðburði, og niðurhali gagna til dæmis til notkunar í Excel.

Í gagnatorginu er að finna margvísleg gögn, meðal annars frá Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands, Vinnumálastofnun, Fasteignaskrá, Orkustofnun og Ferðamálastofu. Að auki eru þar gögn frá ríkislögreglustjóra og töluleg gögn úr skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.
 
Gögnin spanna nærri 450 ára tímabil, söguleg gögn allt frá því um aldamótin 1600 og spár sem ná fram til ársins 2050.
Öll þessi gögn eru nú aðgengileg netnotendum án endurgjalds á gagnatorginu DataMarket. 

Gagnatorg DataMarket

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert