[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Fyrsti bíllinn kemur til landsins árið 1904

Fyrsti bíllinn kemur til landsins árið 1904

Þjóðminjasafn/Ljósmyndari Sigfús Eymundsson

Fyrsti bíllinn kom hingað til lands í júní árið 1904. Þar var um að ræða notaða þýska bifreið af gerðinni Cudell, sem Ditlev Thomsen kaupmaður keypti með 2.000 króna tilstyrk frá Alþingi, og var bíllinn samkvæmt því nefndur Thomsensbíllinn. Ætlunin með þessum kaupum var að sannreyna hvort að mótorvagnar kæmu að notum á Íslandi. Bíllinn var orðinn þriggja ára gamall þegar hann var fluttur til landsins og þá orðinn úreltur og líktist fremur hestvagni en bifreið. Vélin var neðantil að aftan og tannhjól notuð til að færa aflið frá vélinni út í hjólin.

Í Ingólfi mátti lesa eftirfarandi frásögn 26. júní árið 1904:

"Mikil nýjung þótti það á þriðjudaginn var, þegar Thomsen kaupmaður tók að aka um götur bæjarins á bifreið sinni. Þyrptist að múgur og margmenni til þess að sjá þetta furðuverk og þreyttu götusveinar kappskeið við reiðina. Fór hún með braki og brestum og þótti mörgum sem Ásaþór mundi þar fara í kerru sinni og ætla í austurveg að berja tröll. En varla mundi jötnum hafa mikil ógn staðið af þessari kerru því henni gekk allskrykkjótt og varð seinast ekki sjálfbjarga, svo að draga varð hana heim með handafli."

Thomsen réði Þorkel Þ. Clementz sem bílstjóra, en hann fór á bílasýningu í Kaupmannahöfn áður en bíllinn kom til landsins, og lærði þar að aka bíl á 8 daga námskeiði. Þorkell ók bílnum fyrstur manna og var ekki sáttur við farartækið og taldi að Thomsen hefði keypt "lélegt og gamalt áhald".
Enda fór það svo að bíllinn reyndist illa, auk þess sem varahlutaskortur og bilanir settu strik í reikninginn. Vegir voru lélegir og tækniþekking takmörkuð, þannig að sækja þurfi alla varahluti og viðgerðir til Danmerkur, sem gekk bæði seint og illa.

Eftir að bíllinn hafði verið í akstri hérlendis í ár var honum lagt og að endingu sendur aftur til Danmerkur árið 1908, eftir að hafa staðið ónotaður þrjú ár.

Á myndinni eru f.v.: Tómas Jónsson, síðar kaupmaður, Þorkell Þ. Clementz, vélfræðingur og fyrsti bílstjórinn á Íslandi, og Ditlev Thomsen kaupmaður.