Gunnar Kristjánsson til FH

Gunnar í bikarleik gegn Þrótti R. í sumar.
Gunnar í bikarleik gegn Þrótti R. í sumar. mbl.is/Ómar

Íslandsmeistarar FH hafa náð samkomulagi við KR um leigu á knattspyrnumanninum Gunnari Kristjánssyni út tímabilið. Þetta staðfesti Kristinn Kjærnested formaður stjórnar knattspyrnudeildar KR í samtali við mbl.is.

Gunnar leikur ýmist sem kantmaður eða sóknarmaður og er eldfljótur leikmaður.

Hann er uppalinn KR-ingur og lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki árið 2004 en Gunnar er 23 ára gamall. Hann lék með Víkingi R. 2007 og 2008 en kom svo aftur til KR og hefur leikið 6 deildarleiki og 3 bikarleiki fyrir félagið í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert