Tönne á reynslu hjá Stjörnunni

Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar.
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Samkvæmt fréttasíðunni Fótbolti.net hefur Stjarnan fengið Norðmanninn Erik Tönne, samherja Hannesar Þórs hjá Sandnes Ulf, til sín á reynslu.

Tönne er 24 ára gamall og hefur leikið með Sandnes undanfarin tvö ár. Hann getur spilað bæði sem vinstri bakvörður og sem kantmaður. Samkvæmt Rúnari Páli Sigmundssyni, þjálfara Stjörnunnar, fékk Tönne góð meðmæli en Stjarnan vill skoða leikmanninn aðeins nánar áður en liðið gengur frá samning við hann. Tönne er á frjálsri sölu en samningur hans við Sandnes er runninn út.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert