Ungur Þórsari á reynslu í Hollandi

Birkir Heimisson í leik með Þór í sumar.
Birkir Heimisson í leik með Þór í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Birkir Heimisson, fimmtán ára gamall leikmaður Þórs á Akureyri, er þessa dagana á reynslu hjá hollenska félaginu Heerenveen þar sem hann æfir og leikur með yngri liðum félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs.

Birkir mun dvelja hjá hollenska félaginu í vikutíma, en hann lék með U17 ára landsliði Íslands í undankeppni Evrópumótsins hér heima á dögunum og kom þar þátt í öllum leikjum Íslands. Þá varð hann bikarmeistari með þriðja flokki Þórs í sumar.

Heerenveen leikur í hollensku úrvalsdeildinni og sló Alfreð Finnbogason í gegn í búningi þeirra á árunum 2012-2014 þar sem hann varð til að mynda markahæstur í deildinni síðasta árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert