Félaginu til skammar

„Við vorum Þrótti til skammar í seinni hálfleik,“ sagði Karl Brynjar Björnsson, fyrirliði Þróttar, eftir stórtap gegn Fjölni í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld.

„Við byrjuðum ágætlega og hefðum getað skorað í fyrri hálfleik, en sá síðari var hörmulegur. Við verðum að setjast aðeins yfir hvað gerðist hjá okkur. Það er ekkert annað að gera núna en fara inn í klefa, gleyma þessum leik sem fyrst og fara síðan að fá einhver stig,“ sagði fyrirliðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert