49 ára og spilaði í Lengjubikarnum

Gunnar Ingi ásamt Brynjari Óla Bjarnasyni. Það munar ekki nema …
Gunnar Ingi ásamt Brynjari Óla Bjarnasyni. Það munar ekki nema 31 ári á leikmönnunum, sem voru mótherjar í gær.

Gunnar Ingi Valgeirsson var meðal leikmanna Sindra sem mætti Vestra í Lengjubikarnum í gær. Gunnar er 49 ára gamall og enn í fullu fjöri. 

Vestri vann leikinn 1:0, en Gunnar spilaði allan leikinn fyrir Sindra. Gunnar varð leikjahæsti leikmaður Íslands í fyrra, er hann lék sinn 401. deildarleik í meistaraflokki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert