Atli Sigurjónsson æfir með KR

Atli með boltann í leik með KR gegn Víkingi Ólafsvík …
Atli með boltann í leik með KR gegn Víkingi Ólafsvík sumarið 2013. mbl.is/Styrmir Kári

Miðjumaðurinn Atli Sigurjónsson æfir með KR þessa dagana en hann komst að samkomulagi við Breiðablik um að rifta samningi sínum við félagið fyrir rúmum tveimur vikum.

KR hefur leik á Íslandsmótinu í knattspyrnu á mánudag þegar liðið tekur á móti Víkingi Reykjavík. Atli lék með KR á árunum 2012-2014. Hann lék með Breiðabliki undanfarin tvö tímabil og skoraði átta mörk í 49 leikjum fyrir Kópavogsliðið en hann hóf feril sinn hjá Þór á Akureyri.

Atli var til reynslu hjá hol­lenska B-deild­arliðinu Al­m­ere City á dögunum en liðið er í sjö­unda sæti deild­ar­inn­ar og í bar­áttu um að kom­ast í um­spil um sæti í úr­vals­deild­inni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert