Markalaust hjá Valsmönnum í Lettlandi

Haukur Páll Sigurðsson og félagar í Val gerðu markalaust jafntefli …
Haukur Páll Sigurðsson og félagar í Val gerðu markalaust jafntefli í Lettlandi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Valur og Ventspils frá Lettlandi gerðu í dag markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu, en leikið var í Ventspils. Leikurinn var mjög jafn og verða úrslitin að teljast sanngjörn. 

Flestar tilraunir leiksins voru skot utan teigs sem hittu ekki markið. Eiður Aron Sigurbjörnsson fékk samt sem áður besta færi leiksins, en skalli hans af stuttu færi fór yfir markið. Anton Ari Einarsson í marki Vals hafði ekki mikið að gera.

Liðin mætast í seinni leiknum á Valsvelli 6. júlí. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is

Ventspils 0:0 Valur opna loka
90. mín. Leik lokið Markalaust í Lettlandi. Fín úrslit fyrir Valsmenn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert