Taskovic farinn til Sandgerðis

Igor Taskovic í leik með Fjölni gegn Breiðabliki.
Igor Taskovic í leik með Fjölni gegn Breiðabliki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Serbneski knattspyrnumaðurinn Igor Taskovic, sem hefur leikið með Fjölni á þessu keppnistímabili og áður með Víkingi í Reykjavík um nokkurra ára skeið, er genginn til liðs við Reyni í Sandgerði.

Taskovic, sem er 35 ára gamall, hefur spilað 67 leiki í efstu deild og skorað sex mörk, þar af sjö leiki með Fjölni á þessu tímabili. Hann lék einnig með Víkingum í 1. deildinni og var fyrirliði þeirra um skeið.

Reynismenn sitja á botni 3. deildar og eru í mjög erfiðri fallbaráttu en hafa náð sér í fleiri leikmenn síðustu daga. Meðal annars eru tveir aðrir Serbar komnir til liðs við þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert