KR heldur í vonina um Evrópusæti

Þjálfarateymi KR-inga. Willum Þór Þórsson og Arnar Gunnlaugsson.
Þjálfarateymi KR-inga. Willum Þór Þórsson og Arnar Gunnlaugsson. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

KR-ingar halda enn í vonina um að ná Evrópusæti eftir ósigur FH-inga gegn Fjölnismönnum í Pepsi-deildinni í kvöld.

Slagurinn um tvö Evrópusæti stendur á milli Stjörnunnar, FH og KR. Stjarnan er með 35 stig í öðru sæti, FH 34 og KR 30. Takist Stjörnunni og FH að vinna leiki sína í næstsíðustu umferðinni á sunnudaginn tryggja liðin sér Evrópusæti.

Leikirnir sem þessi þrjú lið eiga eftir eru:

Stjarnan: Valur (h), KR (ú)

FH: Víkingur Ó (ú), Breiðablik (h)

KR: Fjölnir (ú), Stjarnan (h)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert