Lið Þórs/KA/Hamranna varð bikarmeistari í 2. flokki kvenna í knattspyrnu í dag með sigri á Stjörnunni, 1:0, í úrslitaleik. Liðið er þar með Íslands- og bikarmeistari en norðankonur urðu einnig Íslandsmeistarar í 2. flokki í fyrra. Úrslitaleikurinn fór fram á Þórsvelli í dag.
Margrét Árnadóttir skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik. Til gamans má geta að Andrea Mist Pálsdóttir, útileikmaður toppliðs úrvalsdeildar kvenna, Þórs/KA, stóð í markinu hjá Þór/KA/Hömrunum í dag, vegna markmannsvandræða liðsins.