Ari og Ísak á reynslu til Brighton

Ísak Bergmann Jóhannesson.
Ísak Bergmann Jóhannesson. Ljósmynd/KSÍ

Knattspyrnumennirnir Ari Sigurpálsson úr HK og Ísak Bergmann Jóhannesson úr ÍA æfa með enska úrvalsdeildarliðinu Brighton þessa vikuna.

Báðir eru þeir fæddir árið 2003, en þeir munu spila með unglingaliði félagsins gegn Chelsea á laugardag eftir því sem umboðsskrifstofan Total Football greinir frá í dag.

Báðir léku þeir tvo leiki með U15 ára landsliði Íslands í haust. Ari skoraði í 5:1-sigri í fyrri leik af tveimur gegn Færeyjum og Ísak skoraði í 7:0-sigri gegn Færeyjum í síðari viðureigninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert