Ingibjörg á reynslu á Ítalíu

Ingibjörg Sigurðardóttir.
Ingibjörg Sigurðardóttir. mbl.is/Golli

Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Breiðabliks, æfir þessa dagana með ítalska meistaraliðinu Fiorentina þar sem hún er á reynslu.

Þetta kom fram á fotbolti.net í gær, en hin tvítuga Ingibjörg vakti mikla athygli í sumar þar sem hún fór með íslenska landsliðinu á Evrópumótið í Hollandi.

Ingibjörg æfði í haust með norska liðinu Vålerenga, en hjá Fiorentina hittir hún fyrir Sigrúnu Ellu Einarsdóttur sem gekk í raðir félagsins í sumar. Þá spila þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir með ítalska liðinu Verona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert