Byrjunarlið Íslands - Albert byrjar

Alberg Guðmundsson fær tækifæri í byrjunarliðinu.
Alberg Guðmundsson fær tækifæri í byrjunarliðinu. AFP

Heimir Hallgrímsson hefur valið þá ellefu leikmenn sem byrja inn á í vináttuleiknum gegn Mexíkó í Santa Clara í Bandaríkjunum í nótt. Albert Guðmundsson er í byrjunarliðinu en hann spilaði mjög vel með landsliðinu í Indónesíu í janúar.

Rúnar Alex Rúnarsson fær tækifæri í markinu og Kári Árnason og Sverrir Ingi Ingason skipa miðvarðaparið. Aron Einar Gunnarsson er búinn að jafna sig á meiðslum og er hann á miðjunni ásamt Birki Bjarnasyni. Byrjunarliðið má sjá hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert