KFG enn með fullt hús

Tómas Joð Þorsteinsson, fyrrverandi leikmaður Fylkis, er leikmaður KFG.
Tómas Joð Þorsteinsson, fyrrverandi leikmaður Fylkis, er leikmaður KFG. mbl.is/Eggert Jóhannesson

KFG er enn með fullt hús stiga í 3. deild karla í fótbolta eftir 4:2-útisigur á Vængjum Júpíters í 3. umferðinni á Fjölnisvelli í kvöld.

Finn Axel Hansen skoraði tvívegis fyrir KFG og Jóhann Ólafur Jóhannsson skoraði eitt mark, en markaskorari fjórða marks KFG lá ekki ljós fyrir er fréttin var skrifuð.

Daníel Rögnvaldsson og Brynjar Gauti Þorsteinsson skoruðu mörk Vængja Júpíters sem eru í 8. sæti með eitt stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert