Sindri tók á móti Hömrunum í 10. umferð Inkasso-deildar kvenna í knattspyrnu í dag en leiknum lauk með 1:0-sigri gestanna. Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði sigurmarkið á 70. mínútu en þetta var annar sigurleikur Hamranna í röð.
Sindri er sem fyrr á botni deildarinnar með 1 stig en liðið hefur leikið 9 leiki í deildinni í sumar. Hamrarnir eru hins vegar komnir í sjötta sæti deildarinnar í 11 stig, fjórum stigum frá fallsæti.