Norsk kona þjálfar stúlkur í Val

Hlín Eiríksdóttir, ein af upprennandi leikmönnum Vals.
Hlín Eiríksdóttir, ein af upprennandi leikmönnum Vals. mbl.is/Þórir Ó. Tryggvason

Valur hefur ráðið reyndan norskan þjálfara í uppbyggingarstarf í kvennaflokkum félagsins og hefur sú meðal annars þjálfað yngri landslið Norðmanna. 

Þjálfarinn heitir Ranveig Karlsen en frá þessu er greint í tilkynningu á heimasíðu Vals. Karlsen hefur þjálfað yngri landslið í Noregi en þjálfaði einnig hjá Lilleström sem Sigríður Lára Garðarsdóttir spilar með um þessar mundir. 

Karlsen mun stýra 2. flokki Vals en mun einnig sjá um 3. flokk kvenna og 7. flokk kvenna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert