Stefnt er að því að miðasala á leik Íslands gegn Rúmeníu í umspili fyrir Evrópumót karla í knattspyrnu hefjist 26. febrúar. Leikurinn fer fram 26. mars en leikið verður á Laugardalsvelli ef völlurinn verður leikhæfur.
Knattspyrnusamband Íslands hefur skilað inn þeirri áætlun sinni til Knattspyrnusambands Evrópu.
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að kaupendur ársmiða og haustmiða á leiki Íslands í undankeppni EM verði í forgangi þegar miðasala opnar.
Miðasölunni verður skipt í þrjú þrep. Í fyrsta þrepi miðasölu verður kaupendum ársmiða boðið að kaupa miða, í öðru þrepi bætast kaupendur haustmiða og í þriðja þrepi verður opnað fyrir almenna sölu.